Upprifjunarnámskeið

9.5.2016

Samgöngustofa mun halda upprifjunarnámskeið fyrir prófdómara fyrir flugskírteini þann 9. júní nk. Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum fyrir endurnýjun/framlengingu.

 Námskeiðið verður haldið í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.

Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 3. júní nk.

Námskeiðsgjaldið er 34.880.- og innifalið eru veitingar meðan á námskeiði stendur.