Gátlisti fyrir strandveiðar
Nú þegar strandveiðitímabilið er að hefjast er vert að minna á gátlista sem Samgöngustofa og Siglingaráð gáfu út. Á gátlistanum er að finna allt það helsta sem mikilvægt er að hafa í huga til að stuðla að öryggi sjófarenda.
Gátlistann má nálgast hér og hægt er að fylla hann út rafrænt eða prenta hann út og hafa til taks. Sjómenn eru hvattir til að fara vandlega yfir listann og auka þar með öryggi sitt og líkur á ánægjulegri sjóferð.