Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa
Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn sunnudaginn 17. nóvember. Landsmenn eru hvattir til að nota þennan dag til að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og jafnframt íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber sem þátttakandi í umferðinni. Boðað verður til einnar mínútu þagnar klukkan 11:15.
Minningarathöfn við Landspítalann Fossvogi
Boðað er til minningarathafnar í Reykjavík sem verður haldin við bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi klukkan 11:00. Er það þriðja árið í röð sem slíkur minningardagur er haldinn formlega hér á landi en frá árinu 1993 hafa Sameinuðu þjóðirnar tileinkað þriðja sunnudag nóvembermánaðar þessu málefni.
Það er ekki aðeins að dagurinn sé tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur jafnframt skapast sú venja hér á landi að heiðra á þessum degi fulltrúa þeirra starfsstétta sem koma að björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys eiga sér stað. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra mun fyrir hönd þjóðarinnar flytja þessum starfsstéttum þakkir fyrir það mikilvæga og óeigingjarna starf sem þær sinna.
Þyrla Landhelgisgæslunnar mun lenda á þyrlupalli Bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og í kjölfar þess verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við hlið þyrlunnar. Má í því sambandi nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleira.
Að loknu erindi innanríkisráðherra segja tveir einstaklingar frá lífsreynslu sinni eða störfum tengdum umferðarslysum. Starfshópur innanríkisráðuneytisins um Áratug aðgerða annast undirbúning og framkvæmd þessa verkefnis.
Dagskrá (Birt með fyrirvara um breytingar).
- 10:45 Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir við spítalann.
- 11:00 Stjórnandi athafnarinnar setur samkomuna.
- 11:05 Innanríkisráðherra flytur ávarp og segir frá tilefni dagsins.
- 11:15 Mínútu þögn.
- 11:16 Ólafur Ingvar segir reynslusögu.
- 11:21 Ellen Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur og starfsmaður Landspítalans segir reynslusögu.
- 11:26-11:30 Stjórnandi segir athöfninni formlega lokið.
- 11:30 Þátttakendum boðið til kaffis í bílageymslu bráðamóttökunnar.