Úthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða

15.12.2021

Samgöngustofa auglýsir laus til umsóknar 2 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á takmörkunarsvæði III í Árborg.

Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði, skv. 5. gr. laga nr. 134/2001, sbr. reglugerð nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari breytingum.
Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér á vefnum.

Umsóknarfrestur er til og með 21. desember nk.