Verklegt ökunám með kennara heimilt á ný frá 15. apríl
Breytingar á reglugerðum um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar taka gildi 15. apríl og gilda í þrjár vikur. Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur og á það við um verklegt ökunám. Hámarksfjöldi í sama rými, á sama tíma, er 20 manns (fjölgar upp í 50 manns þann 10. maí).
Varðandi bóklegt nám skal tryggja 2 metra nálægðartakmörkun, tryggja að ekki séu á sama tíma fleiri en tuttugu einstaklingar inni í sama rými og að ekki sé samgangur milli rýma.
Sjá nánar á vef Stjórnarráðs Íslands