Viðhorf ökumanna til farsímanotkunar
Í nýrri könnun á umferðarhegðun almennings kemur fram að nánast allir ökumenn gera sér grein fyrir hættunni sem fylgir því að nota farsíma undir stýri til að lesa smáskilaboð eða nota samfélagsmiðla. Þrátt fyrir þetta gangast afar margir við því að hafa notað símann við akstur einmitt með þessum hætti.
Könnunin var unnin af Gallup fyrir Samgöngustofu, en slíkar kannanir hafa verið gerðar árlega frá árinu 2005. Í henni er gerð athugun á hegðun og viðhorfi íslenskra vegfarenda varðandi t.d. símanotkun, hraðakstur, bílbeltanotkun, akstur eftir neyslu áfengis og hvaða atriði í hegðun annarra vegfarenda fara mest í taugarnar á þátttakendum könnunarinnar.
Í fréttatilkynningu frá Samgöngustofu má sjá tölulegar niðurstöður hvað varðar þennan þátt könnunarinnar.
Skýrslan um aksturshegðun almennings í heild .
Hér má sjá gagnlegar upplýsingar um farsímanotkun undir stýri.