Græn skref
Við hvetjum ykkur til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar komið er til okkar í Ármúla 2
Samgöngustofa hvetur til rafrænna samskipta í stað heimsókna og í boði er að halda fjarfundi. Ef þú átt erindi í Ármúlann íhugaðu þá vistvænar samgöngur.
- Aðgengi fyrir hreyfihamlaða: Bílastæði næst aðalinngangi er stæði fyrir hreyfihamlaða.
- Hjólagrindur eru fyrir framan aðalinngang. Verkfæri og hjólapumpu eru hægt að fá að láni hjá afgreiðslu ef þarf.
- Strætó stansar á Háaleitisbraut, spölkorn frá húsnæði Samgöngustofu. Þar stansa strætisvagnar 4 og 11.
- Einnig er stoppistöð Strætó við Nordica hótel á Suðurlandsbraut, þaðan er 6 mínútna ganga að Ármúla 2, þar stansa leiðir 2, 5, 15 og 17.
- Gjaldfrjáls bílastæði eru fyrir framan aðalinngang.