Leigubifreiðastöðvar
Leigubílastöð
Aðilar sem vilja hafa milligöngu um þjónustu leigubifreiða þurfa til þess starfsleyfi frá Samgöngustofu. Starfsleyfið gildir í fimm ár.
Umsókn um starfsleyfi til reksturs leigubifreiðastöðvar
Skilyrði starfsleyfis til reksturs leigubifreiðastöðvar
- Hafa fyrirsvarsmann sem uppfyllir eftirfarandi skilyrði:
- Lögheimili innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
- Námskeið atvinnu- og rekstrarleyfishafa um leigubifreiðaakstur og hafa staðist próf
- Gott orðspor, það er að umsækjandi hafi ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi (sakavottorð) - Fullnægjandi fjárhagsstaða
Fylgigögn
- Staðfesting á lögheimili (Búsetuvottorð) – Þjóðskrá
- Sakavottorð: Samgöngustofa aflar upplýsinga úr sakaskrá
- Staðfesting á fullnægjandi fjárhagsstöðu, t.d. áritaður ársreikningur eða staðfest skattframtal
- Afrit af gildum persónuskilríkjum sem staðfesta ríkisfang innan Evrópska efnahagssvæðisins (t.d. ökuskírteini eða vegabréf)
Einstaklingar sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu framvísa dvalar- og atvinnuleyfi
Kostnaður
Kostnaður við starfsleyfi er samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu
Athugið að kostnaður við námskeið og vottorð þarf að nálgast hjá viðeigandi aðilum.
Námskeið
Ökuskólinn í Mjódd býður upp á námskeið fyrir þá sem vilja sækja um leyfi vegna leigubifreiðaaksturs.
Spurningar?
Svör við helstu spurningum um leyfi til leigubifreiðaaksturs má finna hér.
Hægt er að senda fyrirspurnir á leyfisveitingar@samgongustofa.is ef einhverjar frekari spurningar vakna.
Lög og reglur
Afgreiðsla og útgáfa leyfa eru í samræmi við lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022 sem tóku gildi 1. apríl 2023. Nánar er kveðið á um útfærslu laganna í reglugerð um leigubifreiðaakstur nr. 324/2023.
Listi yfir leigubifreiðastöðvar
A-stöðin ehf. |
Á.R. Taxi ehf. (Árborg) |
Bifreiðastöð Oddeyrar ehf. (Akureyri) |
Bifreiðastöð Selfoss ehf. (Árborg) |
Borgarbílastöðin ehf. |
BSR ehf. |
City Taxi Reykjavík ehf. |
Hopp Leigubílar ehf. |
Hreyfill svf. |
Taxi
Service ehf. |
Listi uppfærður 17.11.2021