Rekstrarleyfi

Áður atvinnuleyfi/leyfishafar

Einstaklingar eða lögaðilar/fyrirtæki sem vilja reka leigubíl í sinni eigu eða umráðum þurfa til þess rekstrarleyfi frá Samgöngustofu. Rekstrarleyfið gildir í fimm ár. 

Umsókn um rekstrarleyfi til leigubifreiðaaksturs 


Skilyrði rekstrarleyfis

  • Lögheimili innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
  • 21 árs aldur
  • Ökuréttindi:
    - Almenn ökuréttindi í minnst þrjú ár (almennt bílpróf, B-réttindi)
    - Réttindi til að aksturs í atvinnuskyni (B-far)
  • Námskeið atvinnu- og rekstrarleyfishafa um leigubifreiðaakstur og hafa staðist próf
  • Gott orðspor, það er að umsækjandi hafi ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi (sakavottorð)
  • Afgreiðsla á leigubifreiðastöð
    - Rekstrarleyfishafi með eina bifreið getur verið sín eigin stöð
  • Einn eigandi eða umráðamaður leigubíls með viðeigandi ökutækjatryggingu
  • Fjár síns ráðandi, staðfesting á að umsækjandi sé ekki í gjaldþrotaskiptum (búsforræðisvottorð)
  • Ekki í vanskilum með opinber gjöld
  • Rafræn skrá sem geymir gervihnattaupplýsingar hverrar seldrar ferðar svo hægt sé að rekja hverja ferð, upplýsingar skulu geymdar í a.m.k. 60 daga frá því ferð var ekin.

Fylgigögn

  • Staðfesting á lögheimili (Búsetuvottorð) – Þjóðskrá
  • Afrit af ökuskírteini (báðar hliðar)
  • Sakavottorð: Samgöngustofa aflar upplýsinga úr sakaskrá
  • Búsforræðisvottorð – Island.is
  • Staðfesting á að opinber gjöld séu ekki í vanskilum - Island.is eða Skatturinn
  • Staðfesting á viðeigandi ökutækjatryggingu frá tryggingarfélagi
  • Nýleg rafræn mynd í leyfisskírteini
  • Afrit af samningi við leigubifreiðastöð ef rekstrarleyfishafi ætlar að framselja stöð skyldur sínar
  • Afrit af gildum persónuskilríkjum sem staðfesta ríkisfang innan Evrópska efnahagssvæðisins (t.d. ökuskírteini eða vegabréf)
  • Einstaklingar sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu framvísa dvalar- og atvinnuleyfi

Kostnaður

Greiðsla fyrir leyfi fer eftir gjaldskrá Samgöngustofu og er kr. 12.611. Vinsamlegast greiðið inn á reikning 515-26-210867, kt: 540513-1040. Staðfestingu á greiðslu er hægt að senda inn með rafrænni umsókn eða með tölvupósti á netfangið leyfisveitingar@samgongustofa.is.

Athugið að kostnað við námskeið og vottorð þarf að nálgast hjá viðeigandi aðilum.

Námskeið 

Ökuskólinn í Mjódd býður upp á námskeið fyrir þá sem vilja sækja um  leyfi vegna leigubifreiðaaksturs.

Spurningar?

Svör við helstu spurningum um leyfi til leigubifreiðaaksturs má finna hér. Hægt er að senda fyrirspurnir á leyfisveitingar@samgongustofa.is ef einhverjar frekari spurningar vakna. 

Lög og reglur

Afgreiðsla og útgáfa leyfa eru í samræmi við lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022 sem tóku gildi 1. apríl 2023. Nánar er kveðið á um útfærslu laganna í reglugerð um leigubifreiðaakstur nr. 324/2023






Var efnið hjálplegt? Nei