Einkaleigur
Starfsleyfi til reksturs einkaleigu er veitt í samræmi við lög nr. 65/2015 um leigu skráningarskyldra ökutækja og reglugerð nr. 840/2015 um leigu skráningarskyldra ökutækja. Einkaleiga er starfsemi sem rekin er í atvinnuskyni þar sem einstaklingar geta boðið til leigu, að jafnaði til skemmri tíma, skráningarskylt ökutæki í persónulegri eigu með milligöngu leigumiðlunar.
Umsókn um starfsleyfi til reksturs ökutækjaleigu
Skilyrði fyrir starfsleyfi einkaleigu eru eftirfarandi:
1. Umsækjandi eða forsvarsmaður lögaðila þarf að framvísa sakavottorði, sem er afgreitt hjá viðkomandi sýslumannsembætti.
2. Sýna þarf fram á starfsábyrgðartrygging frá viðurkenndu tryggingarfélagi.
3. Umsækjandi eða forsvarsmaður lögaðila þarf að framvísa búsetuvottorði, sem er afgreitt hjá Þjóðskrá.
4. Umsækjandi eða forsvarsmaður lögaðila þarf að framvísa búsforræðisvottorði frá viðkomandi héraðsdómstól.
5. Við endurútgáfu þarf umsækjandi að skila inn afriti af eldra starfsleyfi.
6. Umsækjandi þarf að hafa tilkynnt starfsrekstur til Skattsins en atvinnugreinaflokkun viðkomandi reksturs þarf að tengjast atvinnugreininni með einhverjum hætti.
7. Sýna þarf fram á að umsækjandi sé ekki í skuld sem nemur meira en kr. 500.000 með opinber gjöld eða skatta við innheimtuaðila ríkissjóðs (Skatturinn) og iðgjöld í lífeyrissjóð.
Athuga þarf að áður en ökutæki eru leigð út þarf að tilkynna viðkomandi ökutæki til Samgöngustofu hverju sinni og það þarf að vera skráð í notkunarflokknum ökutækjaleiga. Hver einstaklingur getur verið með allt að tvö ökutæki á eigin kennitölu til útleigu í gegnum einkaleigu sem er með starfsleyfi í gildi.
Afgreiðsla starfsleyfis einkaleigu er 5-10 virkir dagar.