Rekstrarleyfi til farþegaflutninga

Rekstrarleyfi til farþegaflutninga er í samræmi við lög nr. 28/2017 um farþegaflutninga og farmflutninga á landi og reglugerð nr. 474/2017. Rekstrarleyfin eru gefin út á lögaðila og einstaklinga með viðkomandi rekstur. 

Þegar verið er að stunda farþegaflutninga í atvinnuskyni þá þarf að hafa til þess almennt rekstrarleyfi. Þrenns konar rekstrarleyfi eru í boði:

  1. Farþegaflutningar á landi í atvinnuskyni með bifreiðum sem eru skráðar fyrir níu farþega eða fleiri, hópbifreiðar
  2. Farþegaflutningar á landi í atvinnuskyni með sérútbúnum bifreiðum (torfærubifreiðar) sem eru skráðar fyrir færri farþega en níu
  3. Farþegaflutningar á landi í atvinnuskyni í tengslum við ferðaþjónustu með bifreiðum sem eru skráðar fyrir færri farþega en níu, ferðaþjónustuleyfi

 Hægt er að sjá nánar um þetta í Spurt & Svarað.

Umsókn um almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga

Umsóknarferli og skilyrði almenns rekstrarleyfis til farþegaflutninga

Umsókn um almennt rekstrarleyfi til farþegaflutninga er að finna hér.

Skilyrði fyrir rekstrarleyfi til farþegaflutninga eru eftirfarandi:

  1. Umsækjandi þarf að hafa fullnægjandi fjárhagsstöðu sem miðast við fjölda ökutækja. Umsækjandi verður að hafa eigið fé og sjóði sem jafngilda a.m.k. kr. 1.150.000 fyrir fyrsta ökutæki og kr. 640.000 á hvert ökutæki umfram það. Áritaður ársreikningur eða staðfest skattframtal umsækjanda eru fullnægjandi gögn til að sýna fram á eiginfjárstöðu umsækjanda.
  2. Sýna þarf fram á að umsækjandi sé ekki í vanskilum með opinber gjöld hvorki við innheimtuaðila ríkis né sveitarfélaga. Umsækjandi sem er með aðsetur á höfuðborgarsvæðinu þarf að skila inn skriflegri yfirlýsingu frá Skattinum. Umsækjandi sem er með aðsetur utan höfuðborgarsvæðisins þarf að skila inn skriflegri yfirlýsingu frá viðkomandi sýslumannsembætti og viðkomandi sveitarfélagi.
  3. Námskeið fyrir rekstrarleyfishafa í Ökuskólanum í Mjódd. Námskeiðin eru haldin tvisvar sinnum á ári en veitt eru bráðabirgðaleyfi í allt að eitt ár svo umsækjendur hafi færi á að sækja námskeið innan þess tíma.
  4. Forráðamaður rekstrarleyfis þarf að framvísa sakavottorði, sem er aðgengilegt á island.is.
  5. Umsækjandi þarf að hafa tilkynnt starfsrekstur til Skattsins en atvinnugreinaflokkun viðkomandi reksturs þarf að tengjast atvinnugreininni með einhverjum hætti.
  6. Umsækjandi þarf að tilkynna fastanúmer þeirra bifreiða sem tengjast rekstrinum.
  7. Þegar sótt er um ferðaþjónustuleyfi þarf umsækjandi að hafa leyfi ferðasala dagsferða eða ferðaskrifstofuleyfi frá Ferðamálastofu.


Afgreiðsla almenns rekstrarleyfis er 5-10 virkir dagar.

Niðurfelling á vörugjöldum

Skatturinn veitir niðurfellingu á vörugjöldum vegna bifreiðakaupa á sérútbúnum bifreiðum gegn framvísun á staðfestingu atvinnuleyfis frá Samgöngustofu, sjá nánar um það hér. Beiðni um staðfestingu á atvinnuleyfi



Var efnið hjálplegt? Nei