Prófreglur

vegna ökuprófa hjá Frumherja

Það er á ábyrgð próftaka að kynna sér prófreglur Frumherja og Samgöngustofu og fylgja þeim. Prófdómara er heimilt að stöðva próf og víkja próftaka úr prófi, hlíti hann ekki fyrirmælum sem honum eru gefin eða fari hann ekki eftir prófreglum.

Áður en próf hefst

  • Próftaki verður að framvísa gildu persónuskilríki með mynd, slökkva á símum, snjallúrum og öðrum raftækjum og skilja eftir hjá starfsfólki/prófdómara.
  • Próftaka ber að skilja eftir yfirhafnir, derhúfur, húfur, töskur og pennaveski hjá starfsfólki/prófdómara.
  • Próftaki mætir stundvíslega til prófs og framvísar ökunámsbók (ef við á) með staðfestingu á að öllum námsþáttum sé lokið til að mega taka próf.

Á meðan prófi stendur

  • Ef liðnar eru meira en 15 mínútur af próftíma þegar próftaki mætir skal honum að jafnaði vísað frá prófi. Ennfremur skal próftaka ekki hleypt úr prófstofu fyrr en minnst 15 mínútum eftir upphaf prófs.
  • Próftaki skal vera kurteis í hegðun gagnvart starfsfólki og prófdómurum og fara eftir fyrirmælum þeirra.
  • Frumhverji útvegar skriffæri, ekki er heimilt að koma með sín eigin.
  • Öll fylgigögn eða glósur eru óheimil í ökuprófi.
  • Öll samskipti á milli próftaka eru bönnuð á meðan á prófi stendur.

Annað

  • Fjölföldun eða dreifing á prófi eða spurningum úr prófi er með öllu óheimil. Próf eru trúnaðarmál milli Frumherja, Samgöngustofu og próftaka. 



Var efnið hjálplegt? Nei