Veður og vindur

Hér má finna leiðbeiningar um hvar má finna upplýsingar um veður og færð og við hvaða aðstæður þarf að staldra við.

Ef hætta er á að veður, vindur eða færð skerði umferðaröryggi þarf að athuga vel aðstæður á akstursleið áður en haldið er af stað, sérstaklega ef ekið er bifreiðum sem taka á sig mikinn vind, s.s. vörubifreiðar, rútur og bílar með eftirvagna. 

Á eftirfarandi stöðum má finna upplýsingar um færð og veður, veðurviðvaranir og fleiri upplýsingar þess efnis:

 

  • Umferdin.is : Upplýsingar um færð á vegum, ástand vega og vind. Einnig koma þar fram veðurviðvaranir frá Veðurstofunni og þar má sömuleiðis sjá aðstæður í vefmyndavél þar sem þær eru. 
  • Safetravel.is : Aðvaranir um sérstaka hættu, bæði á vegum og annarsstaðar, einkum og sér í lagi vegna veðurs og færðar.
  • Vedur.is - Viðvaranir : Viðvaranir vegna veðurs. Þegar vænta má sérstaklega slæms veðurs er það birt hér.
  • Vedur.is - Vindur : Vindstyrkur. Hér er vænlegast að velja þann tíma sem ætlunin er að aka og lesa úr litnum á kortinu á þeim stað sem ekið er, hver væntanlegur vindstyrkur verður. Skalann má finna undir kortinu og er hann birtur í m/s.

Á neðsta hlekknum hér að ofan er hægt að lesa hver vindstyrkurinn verður þegar fyrirhuguð ökuferð mun eiga sér stað. Að neðan má svo sjá hvort tilefni sé til að bregðast við:

Varúðarviðmið vegna vinds fyrir stór ökutæki

Varudaradstafanir-v.-vedurs.2017

Sérstök varúðarviðmið vegna vinds fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi og aðra tengivagna má finna neðst á þessari síðu.

 

 


Var efnið hjálplegt? Nei