Ökutækjaflokkar T, C, R, S

Dráttarvélar og eftirvagnar þeirra

Skjalið tilheyrir skoðunarhandbók ökutækja. Um lögformlega stöðu, útgáfu og ábyrgð á skjalinu vísast til formála handbókarinnar.

Í skjalinu er að finna samantekt á kröfum um dráttarvélar og eftirvagna þeirra, auk sérstakra áhersluatriða við skoðun.

Stjórnvaldskröfur


Stjórnvaldskröfur sem skjalið byggir á er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

  • Umferðarlög nr. 77/2019.
  • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
  • Reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021.
  • Reglugerð um stærð og þyngd ökutækja nr. 155/2007.
  • Reglugerð ESB um viðurkenningu dráttarvéla nr. 167/2013/ESB.
  • Reglugerð ESB um kröfur til hemla dráttarvéla nr. 2015/68/ESB.
  • Reglugerð ESB um öryggisbúnað dráttarvéla nr. 2015/208/ESB.
  • Tilskipun ESB um stærð og þyngd ökutækja nr. 1996/53/ESB.


Framkvæmd skoðunar og skoðunaratriði


Dráttarvélar og eftirvagnar þeirra sem skráðar eru í umferð (í notkunarflokk 180) ber að skoða reglubundinni skoðun frá 01.01.2022. Núgildandi skoðunarhandbók (útg. 20 frá 15.05.2017) tekur ekki til skoðunar þessara dráttarvéla. Þar til ný útgáfa skoðunarhandbókar tekur gildi verður framkvæmdin sú að skoða dráttarvélar eins og um vörubifreið af sambærlegri heildarþyngd væri og dæma í takt við það. 

Ljóst er þó að sum atriði handbókarinnar eiga ekki við dráttarvélar og því er hér listi yfir þau atriði sem leggja skal áherslu á að alltaf séu skoðuð, en heimilt er þó að dæma á önnur atriði handbókarinnar ef þörf er á. Nánari upplýsingar varðandi nokkur skoðunaratriði er jafnframt að finna í þessu skjali (sbr. aftasta dálk).

SkoðunaratriðiSkýringAthugasemd / nánari upplýsingar
103RúðuþurrkurNánari uppl. í skjalinu
109Speglar

Nánari uppl. í skjalinu

112, 115, 118, 122Aðalljós (stilling, lýsing, ljósker, tenging)

Nánari uppl. í skjalinu

124Stöðuljós 

Nánari uppl. í skjalinu

131Hemlaljós

Nánari uppl. í skjalinu

137Stefnuljós

Nánari uppl. í skjalinu

172Glitaugu

Nánari uppl. í skjalinu

175Flauta 
178Rofar og skiptar  
212Hreyfill - lekamengun  
303Dyrabúnaður  
306Hjólhlífar

Nánari uppl. í skjalinu

312Rúður

Nánari uppl. í skjalinu

344Hættulegir útstæðir hlutir

Nánari uppl. í skjalinu

347Sæti  
403Stýrisendar Nánari uppl. í skjalinu
406Spindlar Nánari uppl. í skjalinu
503Styrkleikamissir  
603Hjólbarðar

Nánari uppl. í skjalinu

718Aflrás - lekamengun  
729ÞjófavörnNánari uppl. í skjalinu
802Hemlafetill  
825Stöðuhemilshandfang / fótstig  
852Hemlarör  
854Hemlaslöngur  
858Hemlaborðar og hemlaklossar 
860Hemlaskálar og hemladiskar  
876Útílega Eftirvagnar, ekki allar dráttarvélar
880Ójafnir hemlunarkraftar

Eftirvagnar, ekki allar dráttarvélar

882Aflögun hemla 

Eftirvagnar, ekki allar dráttarvélar

886Hemlun ökutækja (annarra en með lofthemla)

Eftirvagnar, ekki allar dráttarvélar

890Virkni og geta stöðuhemils 

Eftirvagnar, ekki allar dráttarvélar

923Skráningarmerki  


Flokkar dráttarvéla og eftirvagna þeirra


Flokkun dráttarvéla og eftirvagna þeirra ásamt leyfilegri heildarstærð er að finna í töflum 1A, 1B, 1C og 1D (sbr. tilskipun ESB um viðurkenningu dráttarvéla).


Tafla 1A. Flokkar dráttarvéla og eftirvagna þeirra ásamt hámarksstærð. Athuga að við mælingu á breidd telst belgur hjólbarðans þar sem hjólbarðinn snertir vegyfirborðið ekki með (eingöngu mæla að ytri mörkum snertiflatar við veg en ekki út fyrir belginn).

Ökutækja-flokkur SkilgreiningLengd Breidd Hæð

T

Dráttarvél á hjólum (undirfl a ≤ 40 km/klst, undirfl b > 40 km/klst).

12 m

2,55 m

4 m

C

Dráttarvél á beltum eða bæði á hjólum og beltum.

12 m

2,55 m

4 m

R

Eftirvagn dráttarvélar (undirfl a ≤ 40 km/klst, undirfl b > 40 km/klst).

12 m

2,55 m

4 m

S

Landbúnaðartæki eða búnaður sem dráttarvél dregur.

12 m

3,30 m

4 m

Tafla 1B. Undirflokkar dráttarvéla á hjólum (T).

Ökutækja-flokkurSkilgreining

T1

Dráttarvél á hjólum með lágmarks sporvídd 1.150 mm á þeim ási sem er næstur ökumanni, að eigin þyngd yfir 600 kg, og með að hámarki 1.000 mm undir hæsta punkt (þegar hægt er snúa akstursátt við, með snúanlegu sæti og stýri, er ásinn næst ökumanni sá ás sem hefur mesta þvermálið).

T2

Dráttarvél á hjólum með lágmarks sporvídd undir 1.150 mm, að eigin þyngd yfir 600 kg, með að hámarki 600 mm undir hæsta punkt; hönnunarhraði gæti verið takmarkaður við 30 km/klst (af stöðugleikaástæðum).

T3

Dráttarvél á hjólum að eigin þyngd 600 kg að hámarki.

T4

Dráttarvélar á hjólum í sérhæfð verk (í þremur undirflokkum; 1 háfættar, 2 breiðar, 3 lágfættar).

Tafla 1C. Undirflokkar eftirvagna dráttarvéla (R og S).

ÖkutækjaflokkurSkilgreining

R1

Hefur samanlagða burðargetu ása ≤ 1.500 kg.

R2

Hefur samanlagða burðargetu ása > 1.500 og ≤ 3.500 kg.

R3

Hefur samanlagða burðargetu ása > 3.500 og ≤ 21.000 kg.

R4

Hefur samanlagða burðargetu ása > 21.000 kg.

S1

Hefur samanlagða burðargetu ása ≤ 3.500 kg.

S2

Hefur samanlagða burðargetu ása > 3.500 kg.

Tafla 1D. Hraðaflokkun dráttarvéla og eftirvagna dráttarvéla (a og b), t.d. T1a eða T1b.

HraðaflokkurSkilgreining
aHámarkshraði ≤ 40 km/klst
bHámarkshraði > 40 km/klst.


K1. Hemlar dráttarvéla


Krafa um hemla í dráttarvélum og eftirvögnum þeirra

Dráttarvél skal búin aksturshemli og stöðuhemli. Ökumaður skal geta beitt bæði aksturs- og stöðuhemli úr sæti sínu. Einnig gildir:

  • Um aksturshemil: Ökumaður skal geta beitt aksturshemli án þess að taka hendur af stýri. Aksturshemill skal virka á bæði hjól á a.m.k. einum ási. Ef dráttarvél er búin aðskildum hemlafetlum fyrir hvort hjól á sama ási, og ekki er sérstakur fetill fyrir hemla beggja hjóla, skal vera hægt að tengja fetlana saman.
  • Um stöðuhemil: Stöðuhemill má vera læsibúnaður í aflrás sem festir drifhjól dráttarvélarinnar.

Eftirvagn dráttarvélar skal búinn aksturshemli og stöðuhemili. Einnig gildir:

  • Við rof á tengibúnaði (loft eða vökvaflæði stöðvast) þá á sjálfvirk hemlun að eiga sér stað. Á öllum vögnum með vökvahemlum á stöðuhemill að fara sjálfvirkt á þegar vökvaslanga er ekki tengd. 
  • Stjórnbúnaður fyrir stöðuhemil þarf einnig að vera á vagninum.
  • Eftirvagnar dráttarvéla skulu búnir hemlum eins og lýst er í töflu 3.


Tafla 3. Kröfur til hemla eftirvagna dráttarvéla miðað við ökutækjaflokk.

Ökutækja-flokkurNánari flokkunBúnaðurKröfur
R1Enginn stakur ás með burðargetu >750 kg.Án hemla Ef hemlar eru til staðar þá eru kröfur samkvæmt R2.
""Ás/ásar með burðargetu >750 kg.
Með hemlumÝtihemlar eða hemlar samkvæmt R2.
R2---Með hemlumÝtihemlar eða hemlar samkvæmt R3.
R3---Með hemlumSamtengdir, hálf-samtengdir eða ýtihemlar.
R4---Með hemlumSamtengdir, hálf-samtengdir eða ýtihemlar.
S1Enginn stakur ás með burðargetu >750 kg.
Án hemlaEf hemlar eru til staðar þá eru kröfur samkvæmt S2.
""Ás/ásar með burðargetu >750 kg.
Með hemlumHemlabúnaður samkvæmt S2.
S2---Með hemlumSamtengdir, hálf-samtengdir eða ýtihemlar.

Öðrum kröfum til hemla dráttarvéla og eftirvagna þeirra er lýst í töflu 4. Þessar upplýsingar nýtast þegar hemlaprófun dráttarvéla er möguleg (sjá hemlaprófun neðar) og við hemlaprófun eftirvagna.


Tafla 4. Kröfur til hemla og hemlunar dráttarvéla og eftirvagna þeirra miðað við undirflokka (sbr. tilskipun ESB um kröfur til hemla dráttarvéla).

ÖkutækjaflokkurTæknilegur hámarks hönn.hraðiKröfur
Dráttarvél í hraðaflokki b 
>40 km/klstABS (tekur gildi 01.01.2021)
Dráttarvél í hraðaflokki b 
>60 km/klstABS (frá 2018)
Dráttarvél í hraðaflokki b
>40 km/klstHemlun >50% eða meira
Dráttarvél í hraðaflokki b 
>60 km/klstHemlun >50% eða meira
Dráttarvél í hraðaflokki a/b
>30 km/klstHemlun >30% eða meira (ef dráttarvél er undir 1.500 kg í heildarþyngd) annars 50%
Dráttarvél í hraðaflokki b
>40 km/klstÖryggishemill (e. secondary braking system) á að virkja hemlunarkerfi eftirvagns, virknin á að stigmagnast
Dráttarvél í hraðaflokki b
>40 km/klstSjálfvirk samtenging á hemlafetlum
Eftirvagn dráttarvélar

Allir 

Sjálfvirk tenging á vagnbremsum >12km/klst
Dráttarvél og eftirvagn dráttarvélar í hraðaflokki b
>40 km/klstSjálfvirkar útíherslur (handvirkar fyrir alla aðra eftirvagna)
Dráttarvél í hraðaflokki b
>30 km/klstÖll hjól eiga að hemla,  langlæsing millikassa heimil
Dráttarvélar og eftirvagnar þeirraAllirStöðuhemilskerfi >18%, tvöfalt hemlakerfi (e. two line) með sjálfvirkri hemlun við rof á leiðslu
Eftirvagnar með samanlagða burðargetu ása frá 750 kg til 3500 kg>40 km/klstLágmarkskröfur: ýtihemill
Eftirvagn dráttarvélar >40 km/klstHemlar eiga að virka á öll hjól,  Kröfur um ALB ventil (hleðslustýrður hemlaloki)
Eftirvagn dráttarvélar með samanlagða burðargetu ása >3.500 kg>60 km/klstABS
Eftirvagn dráttavélar með hemlaAllirStöðuhemill sem þarf að halda ökutæki í >18% halla (rg. 822/2004)
Eftirvagn með samanlagða burðargetu ása >3.500 kg með samtengdum eða að hluta til samtengdum hemlumAllirTvöfalt hemlakerfi (e. two line) með sjálfvirkri hemlun (>13,5%) við leiðslurof


Hemlaprófun dráttarvéla

Dráttarvél með fjórhjóladrifi er almennt ekki hægt að prófa í hemlaprófa. Ástæðan er sú að drifbúnaður hennar er alla jafna samtengdur öllum hjólum og leyfir hann ekki mismunandi snúning einstakra ása eða hjóla nema að mjög litlu leyti (líka þótt dráttarvélin sé ekki í gangi). Í staðinn verður að leggja áherslu á skoðun hemlahluta eins og hægt er.

Dráttarvélar með eingöngu drifi að aftan er alla jafna hægt að hemlaprófa og er framkvæmdin eins og um bifreiða með vökvahemla væri að ræða. 


Hemlaprófun eftirvagna dráttarvéla

Eftirvagn dráttarvélar er hemlaprófaður með sama hætti eins og um hefðbundinn eftirvagn bifreiðar væri að ræða. Þar sem vagnarnir eru almennt með vökvahemlakerfi er ekki möguleiki á að framreikna hemlun til að meta hemlunargetu og því er annað hvort mælt með því að slíkir eftirvagnar komi hlaðnir í skoðun eða álag sé hermt í hemlaprófara.


K2. Stýrisbúnaður dráttarvéla


Varðar stýrisbúnað dráttarvéla

Dráttarvél getur verið búin stjórnbúnaði sem virkar einungis á framhjól, einungis á afturhjól eða samtímis á fram- og afturhjól. Dráttarvélar geta verið búnar vökvastýrðum stýrisbúnaði milli stjórnbúnaðar og stýris. Einnig geta dráttarvélar verið búnar stýrisbúnaði með rafdrifnum stýrisbúnaði milli stjórnbúnaðar og stýris, en einungis ef kerfið er tvírása kerfi. Þó þarf að vera hægt að stýra dráttarvélinni þrátt fyrir að einhver hluti í rafmagnsstýringunni bili. Jafnframt er rétt að nefna, til fróðleiks, að sérstakar kröfur eru gerðar til stýribúnaðar á hraðskreiðum dráttarvélum (e. fast tractors) (sbr. tilskipun ESB um öryggisbúnað dráttarvéla).

Við skoðun á stýrisliðum skal horft til þessara útfærslna og stýrisliðir allra stýrðra hjóla skoðaðir.


K3. Útsýni úr dráttarvél (rúður og speglar)


Viðmiðunarpunktur vegna mælinga á sjónsviði

Í textanum hér á eftir getur þurft að meta sjónsvið út úr dráttarvél ef ástæða þykir til. Í því sambandi er notast við viðmiðunarpunkt "V" sem grundvöll ákvörðunar á útsýni og þurrkfleti, sjá mynd 1.


DrattarvelSjonsvid1x

Mynd 1. "V" er viðmiðunarpunktur (e. reference point) sem notast við ákvörðun á útsýn og þurrkfleti. Viðmiðunarpunkturinn er 270 mm aftan við miðja frambrún ökumannssætis og 700 mm ofan við álagslausa setu sætis í miðstillingu.


Sjónsvið ökumanns

Aðeins mega vera 2 stólpar í sjónvinkli ökumanns fram á við, mest 700 mm breiðir. Einn stólpi má vera 1.500 mm breiður sitt hvoru megin við sjónvinkil en þá má aðeins vera einn 700 mm breiður stólpi til viðbótar (á sjónsvæði B) eða hámark 2 stólpar 1.200 mm breiðir (á sjónsvæði A), sbr. mynd 2. 

Notuð er formúlan b ≤ a/10+65 til að reikna hámarksbreidd stólpa ("b") miðað við lárétta fjarlægð að honum ("a"). Til breiddarinnar teljast gluggalistar, dyrakarmur og annað ógegnsætt efni.


DrattarvelSjonsvid2 Mynd 2. Í sjónsviði dráttarvélar mega ekki vera fleiri en 6 stólpar í sjónsviði ökumanns. Sjónarhorn á að vera 44° (sem er 9,5 m breitt í fjarlægð R=12 m).


Ökumaður þarf að geta séð í hluta beggja framhjóla.

Ekki mega vera aðskotahlutir í sjónsviði ökumanns. Baksýnisspeglar teljast ekki vera hindrun á útsýni ef ekki er hægt að koma þeim fyrir á betri máta. Aukaspeglar (ekki áskildir) mega teljast til aðskotahluta í sjónsviði ökumanns.


Rúðuþurrkur og þurrkflötur

Dráttarvél sem búin er yfirbyggingu (húsi) með framrúðu skal vera búin vélknúnum þurrkum sem hreinsa flöt á framrúðu (sbr. tilskipun ESB um viðurkenningu dráttarvéla).

Lágmarks ganghraði á rúðuþurrkum er 20 slög/mín.

Beidd sjónvinkils fyrir þurrkur er 8 m í fjarlægð R=12, sbr. mynd 2. Dæmi um stærð flatarins miðað við mismunandi fjarlægð framrúðu frá viðmiðunarpunkti eru sýnt í töflu 5.


Tafla 5. Dæmi um lágmarksbreidd og lágmarkshæð þurrkflatar á framrúðu miðað við fjarlægð framrúðu frá viðmiðunarpunkti (V).

Fjarlægð framrúðu frá viðmiðunarpunkti (V)Lágmarksbreidd þurrkflatarLágmarkshæð þurrkflatar
 50 cm 33 cm 14 cm
 60 cm 41 cm 17 cm
 70 cm 48 cm 19 cm
 80 cm 54 cm 23 cm
 90 cm 61 cm 25 cm
 100 cm 68 cm 29 cm
 110 cm 75 cm 30 cm
 120 cm 82 cm 35 cm
 150 cm 102 cm 43 cm


Speglar í dráttarvél til aksturs á opinberum vegum

Dráttarvél skal búin a.m.k. einum spegli í flokki I. Ef dráttarvélin dregur eftirvagn sem hindrar baksýn skal hún búin viðbótar baksýnisspeglum á báðum hliðum. Speglarnir skulu gera ökumanni kleift að sjá beggja vegna aftur með ækinu og sýna nægjanlega stórt svæði til þess að veita ökumanni fullnægjandi útsýn.


K4. Ljós, glit og rafbúnaður


Dráttarvél - áskilin ljósker og glitaugu

  • Aðalljósker: Tvö lágljósker sem mega vera í allt að 1500 mm hæð yfir akbraut og eru óbundin af lágmarksbili milli þeirra.
  • Stefnuljósker (og hættuljósker): Tvö framvísandi og tvö afturvísandi sem mega vera sambyggð í einu ljóskeri á hvorri hlið. Hliðarstefnuljósker eru einnig heimil.
  • Stöðuljósker: Tvö framvísandi og tvö afturvísandi.
  • Númersljósker: Eitt eða fleiri.
  • Afturvísandi glitaugu sem mega vera í allt að 1500 mm hæð yfir akbraut ef nauðsynlegt er vegna lögunar ökutækisins.


Dráttarvél - leyfð ljósker og glitaugu

  • Aðalljósker: Tvö eða fjögur ljósker fyrir háljós. Tveimur viðbótarljóskerum fyrir lágljós sem mega vera í allt að 2,8 m hæð yfir akbraut (stilla mest 30 m framan við), samtengd afturvísandi stöðuljóskerum en mega ekki vera samtengd áskildum ljóskerum fyrir lágljós.
  • Bakkljósker: Eitt eða tvö.
  • Breiddarljósker: Tvö framvísandi og tvö afturvísandi ef breidd dráttarvélar er meiri en 2,1 m.
  • Hemlaljósker: Tvö og eitt fyrri miðju.
  • Hliðarljósker
  • Leitarljósker: Eitt sem ekki þarf að vera tengt stöðuljóskerum.
  • Stefnuljósker: Tvö framvísandi og/eða tvö afturvísandi til viðbótar áskildum stefnuljóskerum.
  • Stöðuljósker: Tvö afturvísandi til viðbótar áskildum stöðuljóskerum.
  • Varúðarljósker: Eitt eða fleiri.
  • Vinnuljósker: Eitt eða fleiri sem ekki þurfa að vera tengd  stöðuljóskerum.
  • Þokuafturljósker: Eitt eða tvö.
  • Þokuljósker: Tvö.
  • Afturvísandi glitaugu til viðbótar áskildum glitaugum, hliðar- og framvísandi glitaugu


Eftirvagn dráttarvélar - áskilin og leyfð ljósker og glitaugu

Sömu ákvæði gilda um eftirvagna dráttarvélar og um eftirvagna bifreiðar af sömu leyfðu heildarþyngd og stærð.


K5. Leyfileg burðargeta ása dráttarvéla og eftirvagna þeirra


Til fróðleiks má sjá í töflu 6 upplýsingar um leyfða ásþyngd dráttarvéla og eftirvagna þeirra miðað fjölda ása og hvort þeir eru drifásar eða driflausir.


Tafla 6. Leyfð ásþyngd dráttarvéla og eftirvagna þeirra (sjá skýringar á bókstöfum fyrir neðan töfluna).

 Ökutækja-flokkurFjöldi ásaHeildarþyngd (tonn)Heildarþyngd á drifása (tonn)Heildarþyngd á driflausa ása (tonn)
T1, T2, T4.1, T4.2218 (hlaðin)11,510

T1, T2, T4.1, T4.2

324 (hlaðin)11,5(d)
10
T14 eða fleiri32 (hlaðin)(c)11,5(d)10
T32 eða 30,6 (óhlaðin)(a)(a)
T4.32, 3 eða 410 (hlaðin)(a)
(a)
C(á ekki við)32(á ekki við)(á ekki við)
R1(á ekki við)11,5
01
R218 (hlaðinn)11,5
(b)
R324 (hlaðinn)11,5
(b)
R4 eða fleiri32 (hlaðinn)11,5
(b)
S1(á ekki við)11,5
10
S218 (hlaðinn)11,5
(b)
S324 (hlaðinn)11,5
(b)
S4 eða fleiri32 (hlaðinn)11,5
(b)

  • (a) Ekki þarf að setja þyngdartakmarkanir á á öxla fyrir ökutækjaflokkana T3 og T4.3 þar sem þeir hafa skilgreindar þyngdartakmamarkanir á bæði hlöðnu og óhlöðnu ökutæki, t.d. heildarþyngd fer ekki yfir öxulþyngd.
  • (b) Öxulþyngdir í samræmi við tilskipun ESB um stærð og þyngd, viðauka I punktum 3.1 til 3.3.
  • (c) Þar sem driföxull er með tvöföldum hjólum og loftfjöðrun eða fjöðrun sem telst sambærileg samkvæmt skilgreiningu í viðauka II í tilskipun ESB um stærð og þyngd ökutækja, eða þar sem hver driföxull er með tvöföldum hjólum og heildarþungi hvers öxuls er ekki yfir 9,5 tonn.
  • (d) Öxulþyngdir í samræmi við tilskipun ESB um stærð og þyngd, viðauka I punkti 3.5.


K5. Hjólbarðar dráttarvéla og eftirvagna þeirra


Kröfur til hjólbarða dráttarvéla og eftirvagna þeirra

Hjólbarðar dráttarvéla og eftirvagna þeirra skulu vera gerð til notkunar í almennri umferð og mega ekki vera merkt „Sekunda“, „For Farm Use Only“, „TA“ (Traction Animal), „Bis 30“ (hraði upp að 30 km/klst) eða „Caravan“ (stöðuhýsi eða sambærilegt). 

Hjólbarðar fyrir hægfara ökutæki geta verið merkt „Landbrugsdæk“, „Implementdæk“, „Reifen für Landwirtschaft“ eða sambærilegt og eru þeir ekki samþykktir á ökutækjum sem nota á í almennri umferð.

Mynstursdýpt hjólbarða á ökutækjum með hámarkshönnunarhraða yfir 40 km/klst skal vera að lágmarki 1,6 mm.

Hjólbarðar dráttarvéla og eftirvagna þeirra skulu bera nafn framleiðanda ásamt upplýsingum um stærð, burðargetuflokk og hraðamerkingu (sjá töflu 7).


Tafla 7. Hraðamerkingar á hjólbörðum dráttarvéla og eftirvagna þeirra tákna hámarkshraða við mestu hleðslu.

HraðamerkingHámarkshraði
A210 km/klst
A420 km/klst
A630 km/klst
A840 km/klst
B50 km/klst
D65 km/klst


Einnig er að finna á hjólbarðanum upplýsingar um það hvort hjólbarðarnir henti á drifása eða ekki, sjá mynd 3.


DrattarvelarDekk1

Mynd 3. Burðargetumerking og hraðamerking ásamt upplýsingum um hvort hjólbarðinn sé hannaður fyrir drifás (efra merkið) eða ódriftengdan ás (neðra merkið). Hjólbarði getur verið hannaður fyrir hvoru tveggja og ber þá bæði merkin.


K6. Tengibúnaður dráttarvéla


Tengibúnaður dráttarvéla

Það gilda kröfur um D- og S-gildi á tengibúnaði dráttarvéla (sbr. tilskipun ESB um öryggisbúnað dráttarvéla, viðauka XXXIV), ásamt því að ákveðin hæð þarf að vera á tengibúnaði frá jörðu. 

  • Beisli tengivagns þarf að geta sveigt út í 60° til hvorrar handar, sveigt 20° upp og niður og á tengivagni þarf að vera 90° snúningsveifla og 20° snúningsveifla á hengivagni.
  • S-gildið er ákveðið af framleiðanda og má að hámarki vera 3.000 kg, þó getur það verið allt að 4000 kg ef um kúlutengi dráttarvélar er að ræða.
  • Einnig gildir að 20% heildarþyngdar ökutækisins að lágmarki þarf að hvíla á framhjólum. 
  • Tengibúnaður skal vera að framan á dráttarvél fyrir stöng eða reipi.


Útfærsla á tengibúnaði dráttarvéla

Á myndum 5-7 má sjá nokkrar gerðir tengibúnaðar á dráttarvélum til fróðleiks.


Thritengi Mynd 4. Dráttartengi og þrítengi. (1) Efsti hlekkur. (2) Lyftuhlekkur. (3). Vökvahlekkur með hæðarstillingu. (4) Hæðarstillingarbolti. (5 og 6) Hliðartakmarkari. (7) Lyftiarmar.



Lyftiarmahlekkur-2-

Mynd 5. Lyftiarmahlekkur. Virkni lyftiarmabúnaðar er mismunandi eftir framleiðendum, á myndinni vinstra megin er handfang og klemma en hægra megin bara handfang.



Evroputengi-2-

Mynd 6. Evróputengi, láspinnabúnaður. (1) Láspinni. (2) Lásskinna.


Tegundir-tengja

Mynd 7. Tegundir tengja. (1) Inntakstengi. (2) Krókur. (3) 80 mm kúlutengi. (4) Lyftiarmar.


Mat á sliti í tengibúnaði

Ekki eru til mikið af leiðbeiningum um mat á sliti tengibúnaðarhluta á dráttarvélum. Þó er hægt að leggja mat á slit í þeim útfærslum sem eiga lokast við tengingu, svo sem króks, sjá mynd 8.


Rafsegulplata

Mynd 8. Mat á sliti í tengibúnaði. Á myndinni er sýndur krókur og hvernig hann lokast. Bilið "X" ætti ekki að vera meira en 15 mm (eða meira en viðmið framleiðanda ef þau eru fyrir hendi).


K6. Skermun hjóla á dráttarvélum og eftirvögnum þeirra


Skermun hjólhlífa á dráttarvélum

Fram- og afturhjól dráttarvélar skulu búin hjólhlífum. Dráttarvél í flokki Tb verður að hafa aurhlífar sem getur verið hluti af yfirbyggingu, aurhlífar o.s.frv.

Hjólhlíf afturhjóls skal vera innan við hjólið og ná a.m.k. út yfir hluta hjólbarðans. Bil milli hjóls og hjólhlífar skal gefa nægjanlegt rúm fyrir keðjur eða spyrnur. Auhlífarnar þurfa að hylja að minnsta kosti 2/3 af breidd hjólbarðans. Aurhlífin á að hylja að minnsta kosti 90° af ummáli hjólbarðans, sjá mynd 9.

Hjólhlíf við afturhjól skal ná nógu langt fram til að ekki sé hætta á að fætur ökumanns snerti hjólin í akstri.

Hjólhlíf framhjóls skal þekja alla breidd hjólbarðans. Hún skal ná a.m.k. frá lóðréttu þverplani gegnum hjólmiðju aftur að láréttu þverplani gegnum hjólmiðju.

DrattarvelHjol1Mynd 9. Skermun hjóla á dráttarvél í flokki Tb.


Skermun hjólhlífa á eftirvögnum dráttarvéla

Eftirfarandi kröfur gilda, sjá líka mynd 10:

  • Eftirvagn R1 b: Sömu ákvæði gilda og um fólksbifreið.
  • Eftirvagn R2 b: Sömu ákvæði gilda og um eftirvagn I.
  • Eftirvagn R3 b: Sömu ákvæði gilda og um hópbifreið II.
  • Eftirvagn R4 b: Sömu ákvæði gilda og um eftirvagn III.

DrattarvelavagnHjol1Mynd 10. Skermun hjóla á eftirvögnum dráttarvéla í flokki Rb.


K7. Bakkhljóðmerkisbúnaður í dráttarvél


Bakkhljóðmerkisbúnaður

Sömu ákvæði gilda til að nota bakkhljóðmerkisbúnað í dráttarvélum og um sendi- og vörubifreiðir í sama þyngdarflokki (ökutækja í flokki N).


K7. Þjófavörn í dráttarvél


Þjófavörn

Dráttarvélar með útskiptanlegan dráttarbúnað sem eru með þyngdarhlutfallið jafnt eða meira en 3 (heildarþyngd / eigin þyngd) þurfa að hafa búnað sem kemur í veg fyrir stuld (sbr. tilskipun ESB um öryggisbúnað dráttarvéla, viðauka XVIII).

  • Fyrir dráttarvélar í flokkum T og C þarf að vera hægt að læsa ökumannsrými ásamt því að ekki á að vera hægt að gangsetja ökutækið nema með lykli.
  • Fyrir eftirvagna í flokkum S og R þarf að vera læst hús yfir tengibúnað, hægt að læsa hjólum með klemmu og hægt að læsa stöðuhemli með lás.


Breytingasaga skjalsins


Hér sjást efnislegar breytingar sem orðið hafa á texta skjalsins og dagsetning þeirra. Breytinga er ekki getið nema þær hafi efnisleg áhrif (ekki er getið smávægilegra breytinga á orðalagi, leiðréttinga eða breytinga á uppsetningu skjalsins).

DagsetningEfnislegar breytingar
01.01.2023Nýtt skjal. Efni tekið úr Stoðriti (útg 20 2017): Kafli 1.1.2.2, 3.2.2.2-3, 3.8.2.3, 4.3.2.7, 6.6.2.2, 7.5.2, 8.2.2.4, 9.1.2.5. Aukið og endurbætt.



Var efnið hjálplegt? Nei