Verklagsbók: ADR-skoðun

Atriði til skoðunar og sérkröfur

Skjalið tilheyrir skoðunarhandbók ökutækja. Um lögformlega stöðu, útgáfu og ábyrgð á skjalinu vísast til formála handbókarinnar.

Í skjalinu er að finna skoðunaratriði og sértækar kröfur um framkvæmd skoðunarinnar.

Stjórnvaldskröfur


Stjórnvaldskröfur sem skjalið byggir á er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

  • Umferðarlög nr. 77/2019.
  • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
  • Reglugerð um skráningu ökutækja nr. 751/2003.
  • Reglugerð um flutning á hættulegum farmi nr. 1077/2010.
  • Evrópusamningur um flutninga á hættulegum farmi á vegum, sem undirritaður var í Genf 1957 / ADR-samþykktir, kafli 9.
  • Reglugerð um slökkvitæki nr. 1068/2011.
  • Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.
  • Reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.


ADR-skoðun: Kröfur til skoðunarmanna


Gerð er krafa um að skoðunarmaður hafi verið viðurkenndur samkvæmt eftirfarandi (gildir frá 01.01.2024):

  • G- og S- viðurkenning, eftir því sem við á miðað við stærð ökutækja.


ADR-skoðun: Umfang og ferli


Umfang

Við ADR-skoðun fer fram athugun á því hvort ökutæki uppfyllir kröfur sem til þess eru gerðar eins og lýst er í leiðbeiningaskjali stoðrits um ökutæki sem flytja hættulegan farm. Samantekt á þeim atriðum eru í þessu skjali.


Auðkenning ökutækis

Sérstök áhersla er lögð á að allt verksmiðjunúmerið sé skoðað og vandlega borið saman við skráningargögn. Ef um frávik er að ræða skal hafna skoðun og skráningu.


ADR-skoðun: Skoðunaratriði


Í töflu 1 eru talin upp þau atriði sem skoðuð eru í ADR-skoðun. Aðeins er hægt að dæma atriðin í flokk 2 sem þýðir að athugasemd hafi verið gerð við atriðið.


Tafla 1. Skoðunaratriði fyrir áskilinn búnað ADR-ökutækja (bæði bifreiða og eftirvagna eftir atvikum).

NrAtriði Skýring
A05SlökkvitækiBæði bifreið og eftirvagn. Sjá kröfur í Töflu 5.
A10StoppklossarEinn stoppklossi fyrir hvert ökutæki og skal miða stærð hans við þunga ökutækis og stærð hjólbarða (þ.e. þvermál).
A15AðvörunarmerkiTvö frístandandi aðvörunarmerki (í bifreið). Sjá kröfur neðst í kaflanum.
A20AugnskolAugnskolvökvi í bifreið fyrir áhöfn hennar (þarf ekki fyrir varning með varúðarmerki nr. 1., 1.4, 1.5, 1.6, 2.1, 2.2 og 2.3).
A25MerkingarFerhyrnd appelsínugul merki, búnum endurskini.


Tafla 2. Skoðunaratriði fyrir sérstakan búnað fyrir ökumann og eftir atvikum aðstoðarmann hans (í bifreið).

NrAtriðiSkýring
S05EndurskinsfatnaðurEndurskinsvesti eða endurskinsklæðnaður í bifreið (í samræmi við kröfur skv. staðlinum EN 20471) fyrir hvern áhafnarmeðlim hennar.
S10VasaljósÍ bifreið, án málmyfirborðs sem gæti myndað neista.
S15HlífðarhanskarEitt par fyrir hvern áhafnarmeðlim bifreiðar.
S20AugnhlífðarbúnaðurT.d. öryggisgleraugu, fyrir hvern áhafnarmeðlim bifreiðar.


Tafla 3. Skoðunaratriði fyrir búnað tiltekinna áhættuflokka (bæði bifreiða og eftirvagna eftir atvikum).

NrAtriðiSkýring
T05 ÖndunargrímaÍ bifreið. T.d. öndunargríma með samsettri gassíu/ryksíu af gerðinni A1B1E1K1-P1 eða A2B2E2K2-P2 (eða í samræmi við kröfur sem fram koma í EN 14387:2004 + A1:2008 staðlinum) fyrir ökumann og eftir atvikum aðstoðarmann hans þegar fluttur er varningur með varúðarmerki 2.3 eða 6.1.
T10SkóflaAðeins krafist þegar flutt eru föst eða fljótandi efni með varúðarmerki 3, 4.1, 4.3, 8 og 9.
T15Þéttibúnaður fyrir niðurföllAðeins krafist þegar flutt eru föst eða fljótandi efni með varúðarmerki 3, 4.1, 4.3, 8 og 9.
T20Uppsöfnunarílát úr plastiAðeins krafist þegar flutt eru föst eða fljótandi efni með varúðarmerki 3, 4.1, 4.3, 8 og 9.
 T25Þrýstiprófun á áföstum tankiAðeins krafist fyrir ökutæki með áföstum tank: Framvísa gilda þrýstiprófun tanks annaðhvort með skoðunarskýrslu frá Vinnueftirlitinu eða merkingu á tank.


Tafla 4. Einfölduð framsetning á áskildum búnaði fyrir tiltekna efnisflokka.

NrAtriði / Efnisflokkur12.12.22.334.14.24.35.15.26.16.2789
A10StoppklossarXXXXXXXXXXXXXXX
A15AðvörunarmerkiXXXXXXXXXXXXXXX
S05SýnileikafatnaðurXXXXXXXXXXXXXXX
S10VasaljósXXXXXXXXXXXXXXX
A20Augnskol XXXXXXXXXXX
S15HlífðarhanskarXXXXXXXXXXXXXXX
S20AugnhlífðarbúnaðurXXXXXXXXXXXXXXX
T05Öndunargríma X X
T10Skófla XX
X XX
T15Þéttibúnaður fyrir niðurföll XX X XX
T20Uppsöfnunarílát úr plasti XX X XX


Tafla 5. Lágmarkskröfur til slökkvitækja í ADR-flutningseiningum. Uppgefin stærð er fyrir dufttæki eða tilsvarandi slökkvimátt með öðru heppilegu slökkviefni. Miðað er við leyfða heildarþynd flutningseiningar.

Slökkvitæki (línur) / Flutningseining lhþ (dálkar)≤3,5t   >3,5t og ≤7,5t >7,5t   
Lágmarksfjöldi slökkvitækja2 stk2 stk2 stk
Lágmarksstærð allra slökkvitækja samtals4 kg8 kg12 kg
A.m.k. eitt slökkvitæki hentugt til að slökkva eld í vél eða stjórnhúsi bifreiðar, lágmarksstærð2 kg2 kg2 kg
A.m.k. eitt slökkvitæki, lágmarksstærð2 kg6 kg6 kg


Slökkvitæki

  • Slökkvitæki í ökutæki skal vera af viðurkenndri gerð fyrir A, B og C brunaflokka og skal vera komið fyrir í festingum sem því er ætlað.
  • Handslökkvitæki eiga að vera með innsigli svo hægt sé að sannreyna hvort þau hafi verið notuð.
  • Staðsetja skal slökkvitæki þannig að þau séu auðveldlega aðgengileg fyrir áhöfn ökutækisins og að þau séu varin veðuráhrifum þannig að nothæfi þeirra verði ekki fyrir áhrifum.
  • Sé ökutæki búið áföstu slökkvikerfi til þess gert að slökkva eld í vél, skal það þannig búið að það losi ekki eitraðar loftegundir inn í stjórnhús bifreiðarinnar eða vegna hita frá eldi.
  • Á slökkvitæki skulu vera leiðbeiningar á íslensku um notkun þess.
  • Ef áskilið slökkvitæki er dufttæki skal það vera með innan við ársgamla vottun frá viðurkenndri slökkvitækjaþjónustu um að slökkvitækið sé í lagi.
  • Eitt 2 kg duftslökkvitæki (eða tilsvarandi slökkvimátt með öðru heppilegu slökkviefni) er nægjanlegt í ökutæki sem flytja hættulegan farm í stykkjavöru samkvæmt undanþágureglum sem fram koma í ADR reglum (1.1.3.6) og 11. gr, reglugerðar um flutning á hættulegum farm.


ADR-skoðun: Frávik og niðurstaða


Frávik við ADR-skoðun og niðurstaða

Sé gerð athugasemd við eitthvert skoðunaratriði verður niðurstaða skoðunar „Endurskoðun“ og ökutækið telst ekki hafa staðist skoðunina. Eigi að skrá ökutækið í viðkomandi rekstur í framhaldi af skoðun er þeirri skráningu hafnað. Annars er heimilt er að klára umsóknarferil og/eða staðfesta áframhaldandi leyfi fyrir viðkomandi ökutæki.


Númer skoðunaratriða

Númer skoðunaratriða á skoðunarvottorði eru ADR.xxx.2, þar sem ADR er fast forskeyti, xxx er númer atriðis hér að ofan, og 2 er fasti sem þýðir að athugasemd hafi verið gerð við atriðið. Dæmi: ADR.T05.2 merkir að athugasemd hafi verið gerð við öndunargrímu.


Breytingasaga skjalsins


Hér sjást efnislegar breytingar sem orðið hafa á texta skjalsins og dagsetning þeirra. Breytinga er ekki getið nema þær hafi efnisleg áhrif (ekki er getið smávægilegra breytinga á orðalagi, leiðréttinga eða breytinga á uppsetningu skjalsins).

DagsetningEfnislegar breytingar
30.01.2023Nýtt atriði T25 í töflu 4, þrýstiprófun á áföstum tanki.
01.01.2023Nýtt skjal. Efni tekið unnið upp úr kröfum í lögum og reglugerðum um ADR flutninga.



Var efnið hjálplegt? Nei