Notkunarflokkur

VSK-bifreiðir

Skjalið tilheyrir skoðunarhandbók ökutækja. Um lögformlega stöðu, útgáfu og ábyrgð á skjalinu vísast til formála handbókarinnar.

Í skjalinu er að finna kröfur til VSK-bifreiða og leiðbeiningar um skoðun og skráningu á þeim. 

Stjórnvaldskröfur


Stjórnvaldskröfur sem skjalið byggir á er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

  • Umferðarlög nr. 77/2019.
  • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
  • Reglugerð um skráningu ökutækja nr. 751/2003.
  • Reglugerð um innskatt nr. 192/1993.


Skilgreining notkunarflokksins


Skilgreining á VSK-bifreið

VSK-bifreið getur verið eftirfarandi:

  • sendibifreið (N1)
  • vörubifreið I (N2) ≤ 5.000 kg að leyfðri heildarþyngd
  • fólksbifreið (M1) með ferðaþjónustuleyfi (sjá um ökutæki í leyfisskyldum akstri).


Kröfur til farmrýmis sendi- og vörubifreiða

Í reglugerð um innskatt eru settar fram eftirfarandi kröfur um farmrými og flutningsgetu sendi- og vörubifreiða sem heimilt er að telja til innskatts virðisaukaskatt vegna öflunar, þ.m.t. leigu:

  • Farmrými, opið eða lokað, aftan við öftustu brún sætis eða milliþils skal vera a.m.k. 1700 mm að hleðsludyrum eða hlera. Sé það styttra skal það þó vera lengra en fólksrýmið, mælt frá miðri framrúðu
  • Í farmrými mega hvorki vera sæti né annar búnaður til farþegaflutninga. Sé fólks- eða hópbifreið breytt í sendi- eða vörubifreið skulu með varanlegum hætti fjarlægð úr farmrými sæti ásamt sætisfestingum og öðrum búnaði til fólksflutninga.
  • Skráð flutningsgeta í fólksrými skal vera minni en helmingur af skráðri burðargetu bifreiðarinnar ef miðað er við að hver farþegi/ökumaður vegi 75 kg.


Kröfur til farmskilrúms

Kröfum til farmskilrúms (milliþils) er lýst í sérstöku skjali, Farmskilrúm.


Skráning notkunarflokksins


Notkunarflokkur "VSK-bifreið"

  • Skráningarheimild: Það er heimilt (ekki krafa) að skrá bifreið í þennan notkunarflokk uppfylli hún kröfurnar sem lýst er í þessu skjali.
  • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um gerð og búnað ökutækja og sérstakar kröfur eru gerðar til bifreiða sem heimilt er að merkja með VSK-skráningarmerkjum.
  • Notkun: Til að auðkenna bifreiðir í VSK-akstri.

Við gerðarskráningu sendibifreiða og vörubifreiða I er skráð í gerðarlýsingu hvort gerðin uppfylli VSK-kröfur. Heimilt er að afhenda VSK-merki á slíkar bifreiðir þegar þetta er skráð án þess að bifreiðin sé færð til breytingaskoðunar.

Í öðrum tilvikum verður að færa bifreiðina til breytingaskoðunar hjá skoðunarstofu (VSK-breyting). Standist bifreiðin skoðunina er notkunarflokki breytt í „VSK-bifreið“ og heimilt að afhenda VSK-merki.

Til eru eftirfarandi tvískiptir notkunarflokkar VSK-bifreiða:

  • VSK / Eyjaökutæki
  • VSK / Ferðaþjónustuleyfi
  • VSK / Hættulegur farmur

Ekki er krafa um farmskilrúm í torfærubifreiðum sem notaðar eru til farþegaflutninga í ferðaþjónustu (ökutæki með ferðarþjónustuleyfi).


Skráningarmerki og notkunarflokkur


VSK-bifreið ber sérstök VSK-merki og getur þar með ekki verið á öðrum gerðum skráningarmerkja (má þar af leiðandi ekki bera einkamerki).

VSK-merki hafa hvítan flöt með endurskini með rauða rönd á brúnum og rauða stafi. Upphleyptur flötur er fyrir skoðunarmiða og rauður upphleyptur tígullaga flötur er vinstra megin við bókstafi. VSK-merki geta eingöngu verið á bifreiðum (ekki öðrum flokkum ökutækja).

VSK-bifreiðir eru í notkunarflokknum „VSK-bifreið“ á meðan þau eru á VSK-merkjum. Ef/þegar breyta á til baka í notkunarflokkinn „Almenn notkun“ má afhenda almenn skráningarmerki án breytingaskoðunar. Minnt er þó á að ef eigandi (umráðamaður) hyggst þá breyta litlum sendibíl til baka í fólksbíl (fjölga sætum o.s.frv.) verður að færa bifreiðina til breytingaskoðunar.


Breytingasaga skjalsins


Hér sjást efnislegar breytingar sem orðið hafa á texta skjalsins og dagsetning þeirra. Breytinga er ekki getið nema þær hafi efnisleg áhrif (ekki er getið smávægilegra breytinga á orðalagi, leiðréttinga eða breytinga á uppsetningu skjalsins).

DagsetningEfnislegar breytingar
01.01.2023Nýtt skjal. Efni unnið upp úr reglugerðum.



Var efnið hjálplegt? Nei