Notkunarflokkur

Ökutæki í leyfisskyldum akstri

Skjalið tilheyrir skoðunarhandbók ökutækja. Um lögformlega stöðu, útgáfu og ábyrgð á skjalinu vísast til formála handbókarinnar.

Í skjalinu er að finna kröfur Samgöngustofu til skráningar ökutækja í leyfisskyldan atvinnuakstur.

Stjórnvaldskröfur


Stjórnvaldskröfur sem skjalið byggir á er að finna í eftirfarandi lögum, reglugerðum og/eða reglum (með viðbótum eftir því sem við á):

  • Umferðarlög nr. 77/2019.
  • Lög um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017.
  • Lög um leigubifreiðar nr. 134/2001.
  • Reglugerð um gerð og búnað ökutækja nr. 822/2004.
  • Reglugerð um leigubifreiðar nr. 397/2003.
  • Reglugerð um skráningu ökutækja nr. 751/2003.
  • Reglugerð um merki á skólabifreiðum nr. 279/1989.
  • Reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 474/2017.


Skilgreining notkunarflokkanna


Um er að ræða notkunarflokka vegna tiltekinna farþegaflutninga í atvinnuskyni, þ.e. flutningur fólks gegn endurgjaldi þar sem farþeginn er ekki tengdur rekstri fyrirtækisins sem sér um flutninginn. Slíkur flutningur er bundinn þeirri kröfu að viðkomandi flutningsaðili hafi almennt rekstrarleyfi.


Skráning notkunarflokkanna


Notkunarflokkur "Ferðaþjónustuleyfi"

  • Skráningarheimild: Það er heimilt (ekki krafa) að skrá ökutæki í þennan notkunarflokk uppfylli það kröfurnar sem lýst er í þessu skjali.
  • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
  • Notkun: Til að auðkenna þau ökutæki sem staðfest er að uppfylla skilyrði til notkunar undir ferðaþjónustuleyfi.


Notkunarflokkur "Skólabifreið"

  • Skráningarheimild: Það er heimilt (ekki krafa) að skrá ökutæki í þennan notkunarflokk uppfylli það kröfurnar sem lýst er í þessu skjali.
  • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
  • Notkun: Til að auðkenna þau ökutæki sem staðfest er að uppfylla skilyrði sem skólabifreið.


Notkunarflokkur "Leigubifreið"

  • Skráningarheimild: Það er heimilt (ekki krafa) að skrá ökutæki í þennan notkunarflokk uppfylli það kröfurnar sem lýst er í þessu skjali.
  • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um gerð og búnað ökutækja og reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
  • Notkun: Til að auðkenna þau ökutæki sem staðfest er að uppfylla skilyrði sem leigubifreið.


Notkunarflokkur "Eðalvagn"

ATH: Hætt var að skrá í þennan notkunarflokk þann 1. apríl 2023 og skulu bifreiðarnar skoðaðar og skráðar sem leigubifreiðir frá næstu endurnýjun standist þær þau skilyrði.


  • Skráningarheimild: Það er heimilt (ekki krafa) að skrá ökutæki í þennan notkunarflokk uppfylli það kröfurnar sem lýst er í þessu skjali.
  • Tilvist: Notkunarflokkurinn er til vegna þess að hann er skilgreindur í reglugerð um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.
  • Notkun: Til að auðkenna þau ökutæki sem staðfest er að uppfylla skilyrði sem eðalvagn.


Rekstrarleyfi hópbifreiða (9 farþega eða fleiri)


Umsóknar- og skráningarferill

  1. Umsókn: Ef umsækjandi er ekki þegar með almennt rekstrarleyfi, kemur hann til Samgöngustofu og sækir um almennt rekstrarleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum.
  2. Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um almennt rekstrarleyfi, ásamt þeirri bifreið sem á að leyfisskoða.
  3. Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  4. Skoðunarmiði: Límdur er leyfisskoðunarmiðinn „Leyfisskoðun hópbifreiða“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  5. Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir ökutækið undir almenna rekstrarleyfið sitt með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is.

Kröfur til ökutækis

  • Um sé að ræða hópbifreið.
  • Hlutfall milli vélarafls og þyngdar á að vera yfir 10. Vélarafl uppgefið af framleiðanda í kW deilt með leyfilegri heildarþyngd í tonnum (eða gjaldþyngd ef hún er lægri).

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Leyfisskoðun (LS).
  • Bifreiðin skal standast leyfisskoðun árlega.


Rekstrarleyfi bifreiða sem flytja skólabörn (8 farþega eða færri)


Umsóknar- og skráningarferill

  1. Umsókn: Ef umsækjandi er ekki þegar með almennt rekstrarleyfi, kemur hann til Samgöngustofu og sækir um almennt rekstrarleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum.
  2. Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um almennt rekstrarleyfi, ásamt þeirri bifreið sem á að leyfisskoða.
  3. Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  4. Skoðunarmiði: Límdur er leyfisskoðunarmiðinn „Leyfisskoðun hópbifreiða“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  5. Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir ökutækið undir almenna rekstrarleyfið sitt með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is.

Kröfur til ökutækis

  • Bifreiðin skal búin merkjum fyrir skólabifreið, sbr. lýsingu í reglugerð um merki á skólabifreiðir.
  • Í bifreiðinni skulu vera bílbelti fyrir alla farþega og með slökkvitæki og sjúkrakassa.

  • Sæti bifreiðarinnar skulu búnir upphækkunum fyrir yngstu farþegana þegar við á.

  • Bifreiðin skal skráð í notkunarflokkinn „Skólabifreið“. Ef verið er að breyta bifreið í notkunarflokkinn tilkynnir skoðunarstofa um breyttan notkunarflokk standist hún skoðun.

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Leyfisskoðun (LS).
  • Bifreiðin skal standast leyfisskoðun árlega


Rekstrarleyfi sérútbúinna bifreiða (8 farþega eða færri)


Umsóknar- og skráningarferill

  1. Umsókn: Ef umsækjandi er ekki þegar með almennt rekstrarleyfi, kemur hann til Samgöngustofu og sækir um almennt rekstrarleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum. Einnig þarf umsækjandi að sækja um leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða.
  2. Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um almennt rekstrarleyfi (eða með leyfi í gildi) og leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða, ásamt þeirri bifreið sem á að leyfisskoða.
  3. Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  4. Skoðunarmiði: Límdur er leyfisskoðunarmiðinn „Leyfisskoðun sérútbúin bifreið“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  5. Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir ökutækið undir leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is.

Kröfur til ökutækis

  • Bifreiðin rúmi ekki fleiri en átta farþega.
  • Bifreiðin falli undir skilgreiningu á torfærubifreið í reglugerð um gerð og búnað ökutækja (merkt í ökutækjaskrá „Torfærubifreið“ í gerðarlýsingu) eða er gerðarviðurkennd sem torfærubifreið (ökutækjaflokkur M1G, N1G, N2G, N3G).
  • Hjólbarðastærð bifreiðarinnar skal vera að lágmarki 780 mm.
  • Bifreiðin skal uppfylla kröfur sem gerðar eru til breyttra, sérútbúinna bifreiða í skoðunarhandbók ökutækja, s.s. um slökkvitæki og sjúkrakassa.
  • Bifreiðin skal vera merkt rekstraraðila. Merking skal vera sýnileg og auðlesanleg.

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Leyfisskoðun (LS)
  • Bifreiðin skal standast leyfisskoðun árlega.


Ferðaþjónustuleyfi (8 farþega eða færri)


Umsóknar- og skráningarferill

  1. Umsókn: Umsækjandi kemur til Samgöngustofu og sækir um ferðaþjónustuleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum.
  2. Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um ferðarþjónustuleyfi, ásamt þeirri bifreið sem á að leyfisskoða.
  3. Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  4. Skoðunarmiði: Límdur er leyfisskoðunarmiðinn „Leyfisskoðun ferðaþjónustuleyfi“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  5. Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir bifreiðina undir leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is. Í kjölfarið fær umsækjandi útgefið ferðarþjónustuleyfi hjá Samgöngustofu.

Kröfur til ökutækis

  • Bifreiðin rúmi ekki fleiri en átta farþega.
  • Bifreiðin skal búin þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum, slökkvitæki og sjúkrakassa.
  • Bifreiðin skal vera merkt rekstraraðila. Merking skal vera sýnileg og auðlesanleg. 
  • Bifreiðin skal skráð í notkunarflokkinn „Ökutæki með ferðaþjónustuleyfi“. Ef verið er að breyta bifreið í notkunarflokkinn tilkynnir skoðunarstofa um breyttan notkunarflokk standist hún skoðun.

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Ferðaþjónustuleyfisskoðun (FS).
  • Bifreiðin skal standast leyfisskoðun árlega.


Ferðaþjónustuleyfi (8 farþega eða færri) innan EES / erlend merki


Með breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi árið 2018 var einstaklingum og fyrirtækjum gert heimilt að fá útgefið ferðaþjónustuleyfi að tilteknum skilyrðum uppfylltum og ekki lengur gerð krafa um að fyrirtæki á EES svæðinu sé með starfstöð á Íslandi til þess að fá þetta leyfi. Áfram er krafa um að leyfisskoða bifreiðarnar sem þessi fyrirtæki / einstaklingar eru með á Íslandi og eru á erlendum númerum.

Umsóknar- og skráningarferill

  1. Umsókn: Umsækjandi kemur til Samgöngustofu og sækir um ferðaþjónustuleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum.
  2. Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um ferðarþjónustuleyfið, ásamt þeirri bifreið sem á að leyfisskoða.
  3. Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun (athuga samt að bifreiðin er á erlendum númerum og því fer skoðunin ekki inn í ökutækjaskrá). Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  4. Skoðunarmiði: Límdur er leyfisskoðunarmiðinn „Leyfisskoðun ferðaþjónustuleyfi“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  5. Rekstrarleyfi: Þar sem bifreiðin er ekki í ökutækjaskrá Samgöngustofu þarf skoðunarstofa að senda afrit af leyfisskoðunarskýrslu á netfangið leyfisveitingar@samgongustofa.is. Í kjölfarið fær umsækjandi útgefið ferðaþjónustuleyfi hjá Samgöngustofu.

Kröfur til ökutækis

  • Bifreiðin rúmi ekki fleiri en átta farþega.
  • Bifreiðin skal búin þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum, slökkvitæki og sjúkrakassa.
  • Bifreiðin skal vera merkt rekstraraðila. Merking skal vera sýnileg og auðlesanleg.

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Leyfisskoðun (FS).
  • Bifreiðin skal standast leyfisskoðun árlega.


Eðalvagnaleyfi (fyrir 8 farþega eða færri)


ATH: Með nýjum lögum um leigubifreiðaakstur sem tóku gildi 1. apríl 2023 er rekstur eðalvagnaþjónustu ekki lengur í lögunum og verða þeir bílar leigubílar í staðinn. Þeir einstaklingar, sem höfðu fengið útgefið leyfi til reksturs eðalvagnaþjónustu hjá Samgöngustofu samkvæmt eldri lögum, halda réttindum sínum þar til gildistíma atvinnuskírteinis þeirra lýkur. Við endurnýjun réttinda skulu þeir teljast uppfylla skilyrði um viðeigandi starfshæfni hvað varðar menntun. Frá 1. apríl 2023 verða bifreiðir því ekki skráðar lengur með eðalvagnaleyfi heldur skulu standast skilyrði sem leigubifreiðir og skráðar sem slíkar í ökutækjaskrá.

Umsóknar- og skráningarferill

  • Umsókn: Umsækjandi kemur til Samgöngustofu og sækir um eðalvagnaleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum. Bifreiðin skal vera skráð í eigu einstaklings (ekki fyrirtækis). Bifreið má vera skráð í eigu löggilts fjármögnunarfyrirtækis en viðkomandi einstaklingur skal þá vera skráður 1. umráðamaður.
  • Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um eðalvagnaleyfi, ásamt þeirri bifreið sem á að skoða sem eðalvagn.
  • Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  • Skoðunarmiði: Límdur er skoðunarmiðinn „Rekstrarleyfi eðalvagn“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  • Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir bifreiðina undir leyfi til reksturs sérútbúinna bifreiða með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is. Í kjölfærið fær umsækjandi útgefið eðalvagnaleyfi hjá Samgöngustofu.

Kröfur til ökutækis

  • Bifreiðin skal vera á lista yfir bifreiðar sem flokkast sem eðalvagnar, sjá lista í verklagsreglum um eðalvagna.
  • Bifreiðin skal vera lúxusútgáfa, af stærstu gerð hvers markaðsflokks, frá framleiðanda.
  • Bifreiðin skal flokkast samkvæmt Evrópuskilgreiningum í F, J eða M markaðsflokka ökutækja í fullri stærð (Euro market F-segment, J-segment or M-segment passenger van).
  • Bifreiðin þarf að hafa að lágmarki 4 aðaldyr (dyr aftan á ökutæki teljast ekki sem aðaldyr).
  • Bifreiðin má ekki vera eldri en 8 ára og er það frá fyrstu skráningu hennar.
  • Bifreiðin skal búin leðurinnréttingu (eða sambærilegu gerviefni).
  • Ef stök sæti eru í bifreiðinni skulu þau hafa armhvílu.
  • Bifreiðin skal vera með skyggðar rúður í farþegarými fyrir aftan ökumann.
  • Bifreiðin skal skráð í notkunarflokkinn "Eðalvagn". Ef verið er að breyta bifreið í notkunarflokkinn tilkynnir skoðunarstofa um breyttan notkunarflokk standist hún skoðun.

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Eðalvagnaskoðun (verklag um eðalvagna) (ES).
  • Bifreiðin skal standast leyfisskoðun árlega.


Leigubílaleyfi (8 farþegar eða færri)


Umsóknar- og skráningarferill

  • Umsókn: Umsækjandi sækir um atvinnuleyfi til aksturs leigubifreiðar. Bifreiðin skal vera skráð í eigu einstaklings (ekki fyrirtækis). Bifreið má vera skráð í eigu löggilts fjármögnunarfyrirtækis en viðkomandi einstaklingur skal þá vera skráður 1. umráðamaður.
  • Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með staðfestingu frá Samgöngustofu um að samþykkt hafi verið að skrá þá bifreið sem á að skoða sem leigubifreið. Skoðunartegundin er breytingaskoðun.   
  • Breytingaskoðun: Bifreiðin er breytingaskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  • Skoðunarmiði: Límdur er leyfisskoðunarmiðinn „Rekstrarleyfi leigubifreið“ í framrúðu þeirra bifreiða sem aka gegn fyrirfram umsömdu verði og eru án gjaldmælis og taxaljóss. Á bifreiðir með taxaljósi og gjaldmæli er ekki límdur miði.
  • Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir bifreiðina sem leigubifreið með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is. Í kjölfarið fær umsækjandi útgefið atvinnuskírtieni til aksturs leigubifreiðar og leyfisbréf. 

Kröfur til ökutækis

  • Leigubifreið, sem ekur frá bifreiðastöð, skal vera auðkennd með merki stöðvarinnar neðarlega fyrir miðju í framrúðu og stöðvarnúmeri á áberandi hátt ofarlega vinstra megin í afturrúðu bifreiðar.
  • Leigubifreið skal útbúin gulu þakljósi (taxaljósi) (skv. reglugerð um gerð og búnað ökutækja) ef henni er ekki eingöngu ekið samkvæmt fyrirfram umsömdu verði (skv. upplýsingum frá umráðamanni).
  • Leigubifreið skal búin löggiltum gjaldmæli (skv. lögum um leigubifreiðaakstur) ef henni er ekki eingöngu ekið samkvæmt fyrirfram umsömdu verði (skv. upplýsingum frá umráðamanni).
  • Minnt er á að leigubifreið skal búin þriggja punkta öryggisbeltum í öllum sætum, slökkvitæki og sjúkrakassa.
  • Leigubifreið skal vera skráð í notkunarflokkinn "Leigubifreið". Ef verið er að breyta bifreið í notkunarflokkinn tilkynnir skoðunarstofan um breyttan notkunarflokk standist hún skoðun.

Leyfisskoðun

  • Skoðunartegund: Breytingaskoðun.
  • Bifreiðin skal standast aðalskoðun árlega (skoðunartíðini ökutækis breytist við breytingarskoðun).


Rekstrarleyfi farmflutninga


Umsóknar- og skráningarferill

  1. Umsókn: Ef umsækjandi er ekki þegar með almennt rekstrarleyfi, kemur hann til Samgöngustofu og sækir um almennt rekstrarleyfi og skilar inn viðeigandi gögnum.
  2. Á skoðunarstofu: Umsækjandi fer á skoðunarstöð með leyfið eða með staðfestingu frá Samgöngustofu um að sótt hafi verið um almennt rekstrarleyfi, ásamt þeirri bifreið sem á að skrá undir leyfið.
  3. Leyfisskoðun: Bifreiðin er leyfisskoðuð, sbr. neðangreindar kröfur við skoðun. Standist ökutækið skoðunina er haldið áfram með næstu skref, annars lýkur skoðuninni með viðeigandi hætti og skráningu er hafnað.
  4. Skoðunarmiði: Skoðunarstöð límir skoðunarmiðannn „Rekstrarleyfi farmflutninga“ í framrúðu bifreiðarinnar.
  5. Rekstrarleyfi: Umsækjandi skráir ökutækið undir almenna rekstrarleyfið sitt með því að senda tilkynningu á leyfisveitingar@samgongustofa.is. Í kjölfarið skráir Samgöngustofa athugasemdina „Atvinnurekstur“ á ökutækið í ökutækjaskrá.

Kröfur til ökutækis

  • Ökutækið þarf að vera með gilda skoðun.
  • Ökutækið má ekki vera í notkunarflokkinum „Fornbifreið“.

Leyfisskoðun

  • Engin skoðun er framkvæmd.


Leyfisskoðun (handbók)


Sjá verklagsbækur:


Breytingasaga skjalsins


Hér sjást efnislegar breytingar sem orðið hafa á texta skjalsins og dagsetning þeirra. Breytinga er ekki getið nema þær hafi efnisleg áhrif (ekki er getið smávægilegra breytinga á orðalagi, leiðréttinga eða breytinga á uppsetningu skjalsins).

DagsetningEfnislegar breytingar
04.07.2023
Leigubílaleyfi (8 faþegar eða færri): Bætt við kröfunni um að líma skuli leyfisskoðunarmiðann "Rekstrarleyfi leigubifreið" í framrúðu þeirra bifreiða sem aka gegn fyrirfram umsömdu verði og eru án gjaldmælis og taxaljóss (áfram gildir að ekki er límdur miði á bifreiðir sem eru með taxaljósi).
31.03.2023Netfangi leyfisveitinga breytt úr leyfisv@ í leyfisveitingar@ í skjalinu. Leigubílar: Bætt við kröfu að leigubílar þurfi að hafa þriggja punkta belti, slökkvitæki og sjúkrakassa (afturvirkt). Nú verður bara gerð krafa um gjaldmæli og taxaljós ef bifreiðinni er ekki eingöngu ekið samkvæmt fyrirfram umsömdu verði (skv. upplýsingum frá umráðamanni). Skólabifreiðir: Tilgreind sú krafa (sem vantaði þarna inn en alltaf hefur gilt) að þær skuli vera með slökkvitæki og sjúkrakassa. Eðalvagnaleyfi: Hætta frá 1. apríl 2023 og skulu bílarnir skoðaðir og skráðir sem leigubílar frá næstu endurnýjun standist þeir þau skilyrði (textinn verður þó áfram hér í skjalinu til staðar til glöggvunar um stund).
01.01.2023Nýtt skjal. Efni unnið upp úr skráningarreglum.



Var efnið hjálplegt? Nei